Bæjarstjórn samþykkti fimmtudaginn 13. október umhverfisstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Stefnan hefur verið í endurskoðun hjá umhverfisnefnd s.l. ár og fengið umfjöllun annarra fastanefnda sveitarfélagsins.
Helsta stefna sveitarfélagsins er að vera til fyrirmyndar og leiðandi í umhverfismálum þar sem sjálfbærni náttúru og umhverfis skal höfð að leiðarljósi. Í rekstri allra stofnanna sveitarfélagsins skal leitast við að starfsemin hafi sem minnst neikvæð áhrif á umhverfið. Eitt af helstu markmiðum er að skila umhverfi og náttúru svæðisins til komandi kynslóða í jafn góðu eða betra ástandi en það er nú. Unnin verður framkvæmdaráætlun með markmiðum umhverfisstefnunnar að leiðarljósi og samkvæmt markmiðum loftlagsverkefnis Landverndar og sveitarfélagsins. Umhverfisstefnan verður endurskoðuð á fjögurra ára fresti.
Helstu áherslumál stefnunnar eru að:
* – minnka losun gróðurhúsalofttegunda, með áherslu á samgöngur og vistakstur starfsmanna sveitarfélagsins.
* – innkaupareglur sveitarfélagsins verði endurskoðaðar með það að leiðarljósi að innkaup stofnanna verði vistvæn.
* – flokka endurnýtanleg efni og nýta lífrænan úrgang í þeim tilgangi að draga sem mest úr því sem fer til urðunar.
* – fræða íbúa og starfsfólk um umhverfismál og innra umhverfisstarf sveitarfélagsins og að allir verði hvattir til að stunda vistvænan lífstíl.
* unnar verði leiðbeiningar um umhverfisstarf innan stofnanna sveitarfélagsins sem miða að markmiðum loftlagsverkefnisins og mæla árangur.
Stefnan skiptist í undirkafla sem heita:
* náttúra og landsins gæði
* umhverfi, lýðheilsa og samfélag
* úrgangur og endurnýting
* loftslag og orka
* ferðaþjónusta
* sjávarútvegur
* landbúnaður
Það er mér mikið fagnaðarefni að stefnan hafi verið samþykkt. Næsta skref er að fylgja stefnunni eftir með aðgerðaráætlun til að ná eða nálgast sett markmið.
Sæmundur Helgason