Bæjarstjórn samþykkti fimmtudaginn 13. október umhverfisstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Stefnan hefur verið í endurskoðun hjá umhverfisnefnd s.l. ár og fengið umfjöllun annarra fastanefnda sveitarfélagsins.

Helsta stefna sveitarfélagsins er að vera til fyrirmyndar og leiðandi í umhverfismálum þar sem sjálfbærni náttúru og umhverfis skal höfð að leiðarljósi. Í rekstri allra stofnanna sveitarfélagsins skal leitast við að starfsemin hafi sem minnst neikvæð áhrif á umhverfið. Eitt af helstu markmiðum er að skila umhverfi og náttúru svæðisins til komandi kynslóða í jafn góðu eða betra ástandi en það er nú. Unnin verður framkvæmdaráætlun með markmiðum umhverfisstefnunnar að leiðarljósi og samkvæmt markmiðum loftlagsverkefnis Landverndar og sveitarfélagsins. Umhverfisstefnan verður endurskoðuð á fjögurra ára fresti.

Helstu áherslumál stefnunnar eru að:

*   – minnka losun gróðurhúsalofttegunda, með áherslu á samgöngur og vistakstur starfsmanna sveitarfélagsins.
*   – innkaupareglur sveitarfélagsins verði endurskoðaðar með það að leiðarljósi að innkaup stofnanna verði vistvæn.
*   – flokka endurnýtanleg efni og nýta lífrænan úrgang í þeim tilgangi að draga sem mest úr því sem fer til urðunar.
*   – fræða íbúa og starfsfólk um umhverfismál og innra umhverfisstarf sveitarfélagsins og að allir verði hvattir til að stunda vistvænan lífstíl.
*   unnar verði leiðbeiningar um umhverfisstarf innan stofnanna sveitarfélagsins sem miða að markmiðum loftlagsverkefnisins og mæla árangur.

Stefnan skiptist í undirkafla sem heita:

*   náttúra og landsins gæði
*   umhverfi, lýðheilsa og samfélag
*   úrgangur og endurnýting
*   loftslag og orka
*   ferðaþjónusta
*   sjávarútvegur
*   landbúnaður

Það er mér mikið fagnaðarefni að stefnan hafi verið samþykkt. Næsta skref er að fylgja stefnunni eftir með aðgerðaráætlun til að ná eða nálgast sett markmið.

Sæmundur Helgason

Skildu eftir svar