Guðrún Ingimundardóttir.

14. sæti

Fullt nafn: Guðrún Ingimundardóttir.

Hvar fæddist þú og hvenær? Fædd í Reykjavík þann 5. október 1952.

Heitir þú eftir einhverjum? Já, föðurömmu minni.

Fjölskylduhagir? Ég er í sambúð, er móðir fjögurra barna og á fimm barnabörn.

Áhugamál? Ferðalög, félagsstörf, bækur og góð samskipti.

Uppáhaldsárstími? Vorið.

Góður útivistarstaður í nágrenni við þig ? Þeir eru margir, t.d. Haukafell og Öræfin.

Eitthvað sem fáir vita um þig? Veit ekki hvað það ætti að vera.

Náttúruperla? Sveitarfélagið okkar.

Einkunnarorð? „Það er ekki eftir sem búið er.”