Undanfarin misseri hefur 3. Framboðið í Sveitarfélaginu Hornafirði íhugað framboð til komandi sveitarstjórnarkosninga, sem verða 14. maí næstkomandi.
Fyrir áramót voru haldnir þrír spjallfundir þar sem fram kom hjá fundargestum að mörg málefni brenna á íbúum í samfélaginu. Í framhaldinu hefur stjórnin hist og haldinn var opin fundur í húsi Afls, fyrr í þessari viku.
Ljóst er að framundan eru spennandi tímar í framboðsmálum.