Kæru Hornfirðingar
Fyrir hönd 3. Framboðsins þökkum við kærlega fyrir stuðninginn við okkur á kjördag. Við erum afar stolt af því að hafa fengið tvo fulltrúa í sveitarstjórn og það má með sanni segja að okkar björtustu vonir hafi ræst. Úrslit kosningana sýna að meirihluti Hornfirðinga vill sjá breytingar og við munum gera okkar besta að fylgja því eftir. Við hlökkum til að starfa fyrir ykkur í sveitarstjórn, verkefnin eru mörg stór og vandasöm. En með jákvæðni, kraft og metnað að leiðarljósi munum við starfa í sveitarstjórn, ykkur til heilla.

Fyrir hönd 3. Framboðsins
Þóra og Sæmundur

Skildu eftir svar